Óheppni ekki til í minni orðabók
29.08.2007 08:25:28 / gretarfb

Margt gáfulegra en stela áli

  Jæja ætti maður ekki að fara að blogga fyrst maður er loksins búin að eignast sína fyrstu PC tölvu. 'Eg hef ákveðið að virkja verulega bloggfærslur á næstunni og tjá mig um merkilega sem ómerkilega hluti.  Komin með msn og svona þannig að maður fer að verða einsog hinir, komin útúr hellinum og tek þátt í 21. öldinni.

   'Astæðan fyrir þessari bloggfærslu er að miklu leiti fyrrverandi starfsmanni norðuráls að þakka en hann var rekin í gær en hann starfaði á minni vakt. 'Astæða brottrekstursins var sú að komið var að honum þar sem hann var að stafla heilu bretti af áli í Santa Fe bifreiðina sína. En það magn sem hann ætlaði með heim til sín reiknast til að vera ríflega eitt og hálft tonn.  Hvað drendurinn ætlaði að gera við álkubbana sem merktir eru fyrirtækinu með stórum stöfum grafnir í álkubbana er mönnum ráðgáta. Og voru flestir sem ég ræddi við sammála því að nytsamlegri og þægilegri hlutum hefði verið hægt að ræna. Þess má til gamans geta að svona álkubbur sem vigtar 20 kíló ,og hafði hann eina 50 kubba á sínum snærum ,er sendur út því þetta ál er langt frá því að vera fullunið


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:57:52 / gretarfb

Hvað gerir maður við 900 millur

    'Eg vil byrja á að óska öllum erlendum ríkisborgurum til hamingja þeir geta nú fengið ríkisborgararétt eftir aðeins rúmt ár á 'Islandi , nýstignir útúr flugstöðinni ,kunna ekki stakt orð í íslensku , og hafa ekki hugmynd um einu sinni hvort þeim langar yfir höfuð að setjast hér að.  Njóta náttúrulega allra þeirra fríðinda sem blóðbornir íslendingar njóta. Eða er skilirðið kannski það að búa í sama húsi og þingmaður , ekki segir hún , þannig að hér er búið að gefa tóninn. Alsherjarnefnd getur ekki hér eftir neitað manneskju frá Spáni sem hefur búið á landinu í segjum tvö ár um ríkisborgararétt hér eftir. Búið er að gefa tóninn.  Þó svo að lágmarkstími til að öðlast hann sé 7. ár.   Þannig að í stuttu máli þá er landið að fara að fyllast af fólki frá A-Evrópu , sem rænir af okkur störfunum , því þau sætta sig við lærri laun sem og atvinnurekandinn kýs frekar. (nei afsakið það hefur þegar gerst) Biðlistar á sjúkrahúsum lengjast og eru þeir nógu langir fyrir og svo frv. 

    Maður getur nú ekki annað en vorkennt aumingja Bjarna sem fékk aðeins 900 milljónir í starfslokasamning hjá 'Islandsbanka.  Ekki nóg með það að maðurinn er atvinnulaus heldur fékk hann ekki einu sinni milljarð til að lifa á , hér eftir eru það bara núðlur og vatn , kannski pasta til hátíðabrigða.  Hvað gerir maður við skýtnar 900 millur , kannski yfirbyggður fótboltavöllur ekki einu sinni með áhorfendastæðum. 2-3 skútur, Hummer jeppi og í mesta lagi 3-4 sportbíla.  200 millj.kr.einbýlishús. Kannski ein þyrla þá erum við að tala um 7.sæta í mesta lagi sko. Fyrir utan það var hann ekki með nema svona 15.milljónir á mánuði.

    Maður spyr sig er þetta guð , nei hann heitir Bjarni þannig að það getur ekki verið. Bjargaði hann 100.000 manns frá dauða á óskiljanlegan og hetjulegan hátt, nei varla maður væri örugglega búin að frétta af því , eða bjargaði hann afríku frá hungri, maður spyr sig.  'Eg hef aðeins verið að spá í þessum tölum 900 millur afhverju ekki bara 50 milljarða eða 100 milljarða þá getur maðurinn allavega keypt Liverpool.

    Svona að öllu gríni slepptu ef ég fengi að ráða , var ég að hugsa um fyrir vel unnin störf svona 500 þúsund falleg orð og góð meðmæli, Kannski eitt kampavínsglas.  'Eg er viss um að  Bjarni minn  kæmi heim til konunnar sinnar í svipuðu skapi eftir svoleiðis rausnarskap. ( Heyrðu þeir létu mig bara hafa hálfa milljón uppúr þurru ,sögðu bara að ég hafi skilað góðu starfi og svona mér finnst þetta flott hjá þeim , sögðu svo að þeir myndu mæla með mér í næsta starfi.)   Svona ættu viðbrögðin að vera við heimkomuna.  Nei líklega var fussað og sveiað ,ekki einu sinni milljarður (vinn aldrei þarna aftur)     Þá spyr maður sig er maður að dragast eitthvað aftur úr Hákörlunum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 16:58:35 / gretarfb

'Aframhaldandi stjórn nei takk

    Við erum nú að fara að ganga til kosninga eftir örfáar vikur og spyr maður sig hvort landinn ætli virkilega að láta ganga yfir sig á skítugum skónum 4ár í viðbót. Skoðanakannanir sína að blái flokkurinn rís á meðan pínulitli flokkurinn sem þó er við stjórnvöldin í dag er nánast að hverfa, viljum við lýðræði með einum flokki sem hefur örfáarprósentur og þar sem þessir menn sem engin trúir á verða ráðherrar og taka ákvarðanir sem skiptir okkur svo miklu máli fyrir framtíðina. Og svo höfum við annan flokk sem nýtur gífurlegs stuðnings, (ekki spyrja mig af hverju) hugsar ekki lengra en nefið á þeim nær ,en gerir vel við sitt fólk það er hátekju fólkið heilbrigða fólkið og heppna fólkið, hér gildir frumskógarlögmálið og þeir sem eru óheppnir gamlir eða veikburða eru látnir sitja á hakanum.  Gamalt fólk hefur varla þak yfir höfðinu og ef það hefur það á annað borð þá þarf það í mörgum tilfellum að gera sér það að góðu að slíta samvistum við sinn lífsförunaut, búa í sitthvoru lagi eða jafnvel með bláókunnugri manneskju.  Þegar gamla fólkið sem byggði upp landið okkar og fer á elliheimili ef það fær þá pláss, þá er hirt af því hver einasta króna sama hvað það á nema það nái að leika á kerfið.   Lífeiristekjur þessa fólks er ekkert til að hrópa húrra fyrir þau borguðu skatta af þessum tekjum í upphafi og þurfa svo að borga skatta í annað sinn eftir 76 ára aldur.  Finnst fólki þetta í lagi kannski í Rússlandi.

    Svo eru það fatlaðir og öryrkjar , síðast þegar ég gáði þá voru þau líka fólk. En það finnst ekki okkar háu herrum.  Ef þú ert ekki bara heill og tilbúin undir lífið þá er engin sem styður við bakið á þér ekki nóg með að þetta fólk kemst varla ferðar sinnar vegna lélegs aðgengis hvort sem það er í skólum opinberum byggingum eða undir berum himni þá, eru bætur til þessa fólks til háborinnar skammar sem telur nokkra tugi. Yfirleitt þurfa nánustu að hætta jafnvel í vinnu til að geta annast sitt barn sama á hvaða aldri það er ,eða jafnvel langt eftir aldri, foreldrareiga sér ekki líf eftir að fatlað barn þeirra fæðist því þjóðfélagið er ekki í stakk búið til að viðurkenna hann, öðruvísi er ekki hægt að skilja þetta.

Svo verð ég að enda þetta á einhverjum mesta viðbjóði sem ég hef orðið vitni að, við miðbæjarbrunann og Vilhjálm þ Vilhjálmsson sem fór á nornaveiðar klæddi sig í superman búning og ætlaði að bjarga miðbænum. Meiri kjánahroll hef ég ekki fengið og vona ég sannarlega að fólk láti ekki blekkja sig með svona asnaskap.


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 17:05:39 / gretarfb

Vinna eða félagsheimili?

     Jú hann er á lífi, þó ekki mikið meira en rétt svo.  Kallinn er byrjaður að vinna í álverinu á Grundartanga og hef verið síðan í Desember og verð ég að segja að þetta er einhver rólegasta vinna sem ég hef lent í og hangir maður hálfa vaktina og borar í nefið.  'Eg lenti í því leiðindaatviki að brenna mig á baðmola um daginn sem kemur úr kerjunum á þessum blessaða vinnustað.  Svona baðmoli er ekki nema svona 950- 1000 gráðu heitur en hann skoppaði inn um hálsmálið rann niður á bringuna , ég skoppaði einsog teiknimyndapersóna og molinn rann þá niður á maga þar sem hann gerði tvö góð brunasár. 'Eg var sendur í sturtu og tannburstaður af sjúkraliða(ekki tennurnar).  En samkvæmt minniheppni þá var þetta hans fyrsta brunasár sem ég vissi ekki þá og var 20 mín sturtan eitthvað sem menn fengu höfuðverk af því reyndir menn vildu halda manni í klukkutíma hið minnsta, þannig að þetta fór að éta sig óþægilega mikið inn daginn eftir.  En ég lít núna út einsog ég hafi farið í sumarfrí til 'Iraks.

     Lífið í 'Alverinu er ekki alveg einsog ég hafði ímyndað mér og held ég að skortur á vinnu á löngum tímum geri það að verkum að saumaklúbbarnir og spunasögurnar eru aðeins of mikið fyrir mig, of mikið af fílupúkum og skrítnu liði þarna ,kannski ekki við öðru að búast af stórum vinnustað. En á móti kemur að þarna er líka úrvalsfólk og held ég mig frekar að tali við þau.

    


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 15:35:58 / gretarfb

Tek mér smá hlé.

'Eg hef ákveðið að salta þessa siðu eitthvað framá næsta ár vegna persónulegra mála. Og einnig mun ég ekki heimsækja aðrar síður að svo stöddu. sjáumst hress vonandi á nýju ári.

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 01:35:46 / gretarfb

Gáfulegustu skrifin mín til þessa.

Þegar guð skapaði manninn sem okkur finnst vera svo fullkominn , allt þetta flókna og fallega kerfi sem gengur einsog klukka og gerir okkur kleift að anda , hafa besta og flóknasta heilan af öllum dýrum jarðar , lifa lengst osfrv. Þá klikkaði hann á einu atriði sem er hvernig við skilum frá okkur lofti sem myndast í maganum, oft með látum og hrikalegri fílu , sem kemur okkur til að skammast okkar við ýmsar aðstæður sem skapast , fer eftir stað og stund , reyndar er oft hægt að hlæja og hafa gaman af , sem er kannski pointið með þessu bridda aðeins uppá tilverunni.



‘Eg hugsa nú ekki um þessi mál daghvern og hef neinar gríðarlegar áhyggjur af þessu enda væri ég þá líklega á hæli ef svo væri. En ég vaknaði í morgun og fann hvernig loftið í maganum þrýsti maganum út ,og ekki beið það boðanna , loftið hreinlega varð að komast út og ekki var farið í biðröð og farið í einfaldri röð út , heldur var hljóðinu helst hægt að líkja við þegar maður fer í bíó og þegar WarnerBros merkið birtist og hljóðkerfið rifnar af bassa og titring, sem fær stólana til að hristast. ‘Eg beið örlitla stund til að finna afrakstur þessarar gasmengunar sem myndi líklega drepa mig. En hvað gerðist engin lykt ,ekki vottur. ‘Eg bjó mig undir að það yrðu einhverjir eftirskjálftar sem varð raunin en voru þeir í daufari kantinum , og mátti líkja því hlóði við mjög litla ýlu . af fyrri reynslu þá hafði ég engar rosalegar áhyggjur. En þá kemur þessi líka fnykurinn mér algjörlega að óvörum sem varð til þess að ég reif mig á fætur og kannski var það ætlunarverkið. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé einhver formula á lykt þá, miðað við hljóð eða bara tilviljunin. En þegar á botninn er hvolft þá er það líklega matarræðið sem ræður mestu um.



Þá datt mér í hug að fyrst almáttugur hannaði okkur svona ,hefði hann kannski mátt setja í okkur niðurteljara og tilkynningaskyldu sem segir til um styrkleika vindgangs ,einskonar hurricain warning , sem segir til um 1.2.eða þriðja stigs styrk. Og þegar 1 mínúta er í viðburðin þá er talið niður. Þegar þú ert ekki enn staðin upp í kyrkjunni og farin á afvikinn stað þegar tíu sek eru eftir , þá brjálast kerfið svo þú getir frekar gert þig af fífli með að hlaupa einsog hálfviti út ,eða valda ursla í salnum þar sem heyra má saumnál detta.


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 23:51:52 / gretarfb

Ælupest nei takk

'Eg sit nú við tölvuna hvíðinn með eindæmum og ólgandi maga, og líður svolítið einsog ég sé að fara til tannlæknis , þar sem ég veit að það á að fara að rífa úr mér 3 tennur. Það er svo slæmt að það liggur við að ég fari með faðirvorið, liggur við.

'Eg hef tilkynnt konunni að ég ætli að sofa á sófanum. Nú hugsa margir jæja er nú komið að því. nú hefur eitthvað gengið á .Þá er það nú ekki ástæðan. 'Eg hef verið heima í dag að hugsa um Brynjar sem hefur nánast verið veðvitundalaus í allan dag af hrikalegri ælupest. Aumingja drengurinn er búin að spúa einsog múkki og vanlíðanin þvílík að maður myndi gefa annað nýrað ef það myndi slá á kvalirnar.

En sjúklingurinn sefur í hjónarúminu í nótt og til að minnka möguleikan á að ég fari sömu leið þá tók ég mér það bessaleifi að dveljast frá smithættunni , þó mig gruni að það sé of seint þar sem ég hef reynt að sinna greyinu einsog hægt er í dag. 'Eg finn núna hvernig maginn er farin að tala meira en áður ,og er að reyna að segja mér með allskyns búkhljóðum að ég sé næstur. 'Eg get ekki hugsað mér neitt ónotalegra heldur en tilfinningin rétt áður en matarleifarnar eru að fara út vitleysu megin, og fæ ég þvílíkt hvíðakast þegar undirbúningurinn er hafinn. jakkk.

Nú er ég að hlaða í mig mat einsog mögulegt er því ælandi á tóman maga er viðbjóður. Góði guð hlífðu mér og ég skal kannski fara með faðirvorið.

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 17:05:28 / gretarfb

Traust er.....

      Að treysta pakistana til að ganga óáreyttum með töskuna sína inní flugvél.

      Að trúa því að venjulegur Bandaríkjamaður viti nafnið á forsetanum sínum.

      Að teysta rónanum til að geyma fyrir þig bjórkippuna meðan þú verslar í bókabúðinni.

      Að treysta því að Pétur Blöndal verði næsti fjármálaráðherra og komist vel frá því hlutverki.

      Að treysta því að Lalli Johns og Alli í sandvík stofni í sameiningu félag sem berst gegn áfengis , tóbaks og eiturlyfjamisnotkun.

      Að trúa því að silfurstjörnu Benni verði kosinn mannblendingur ársins.

      Að trúa því að silfurstjarnan hljóti verðlaunin þægilegasta andrúmsloftið og besti vinnumórallinn 2006.

      Að treysta því að homminn sem er við hliðina á þér í almenningssturtunni og henti sápunni viljandi á gólfið og biður þig að sækja hana , geri ekkert við þig.

      Að treysta Gunnari í krossinum til að afhomma Skjöld Eyfjörð og Pál ‘Oskar á einu laugardagseftirmiðdegi með einungis vaselín ,rauðvínsflösku og töfraþulunni agabradabra.

       Að treysta því að róninn á Austurvelli skipti við þig á bjórnum sínum og nýranu í þér.

       Að þú getir boðið Steingrími J Sigfússyni í mat rætt um stjórnmál og hann verði sammála þér í einu og öllu.

       Að treysta Gauja litla til að passa fyrir þig íbúðina yfir helgi og eina skilyrðið sem þú setur honum er að snerta ekki kokkteilsósuna.

       Að trúa því að Mike Tyson gangi í burtu eftir að þú hefur sparkað í punginn á honum ,hrækt framan í hann og sagt honum að hann sé ljótur niggari.

        Að treysta því að valgerður Sverris hljóti nóbelsverðlaun fyrir einstaka enskukunnáttu.

        Að trúa því að Baldur Guðmundsson jr verði slúðurslaus árið 2007.

        Að treysta því að fólk haldi að það sé heil brú í hausnum á mér.

        Að trúa því og treysta að Darren Fletcher vinni gullverðlaun í spretthlaupi á næstu ólympíuleikum og Sutton hljóti silfrið.


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 15:37:42 / gretarfb

Er þetta kynjamisrétti?

       Nú eru allir fjölmiðlar uppfullir á því að lýsa hneikslan sinni af misskiptingu launa og styrkveitingum milli karla og kvennalandsliðanna í fótbolta. Fréttablaðið krafði KSÍ skýringar vegna þess að karlalandssliðið fær mun hærri summu, og finnst fólki þetta vera kynjamisrétti.

      ‘Eg er alfarið á móti kynjamisrétti á vinnumarkaði ekki misskilja mig. En áhugi aðsókn og peningar fara yfirleitt saman. Mæting á karlaleikina er yfirleitt frá 5-10 þúsund manns Þar sem miðaverðið er frá 2000 kr til 5000 fyrir bestu sætin  meðan konurnar fá 100-200 manns á sína leiki og þurfa oft að hafa ókeypis inn, jafnvel þó þær  standi í leikjum gegn þeim bestu. Svo er líka stór munur hvort þú selur sjónvarpsréttinn fyrir 20 milljónir eða 500 þúsund.  Þannig að mér finnst að menn séu kannski ekki alveg að horfa á heildarmyndina í þessu , að geta ætlast til að skipta tekjunum til helminga þar sem karlaliðið setur mikið af sínum tekjum í kvennaliðið.

        Þetta er svipað og Rolling Stones héldu tónleika með Skítamóral og síðarnefnda hljómsveitin færi fram á að aðsóknareirinum yrði skipt jafnt. 

        Reyndar hef ég ekki alltaf verið sáttur við allt sem KS’I gerir í gegnum tíðina til að mynda þegar þeir eyðilögðu algjörlega möguleika Snartar á þáttöku á íslandsmóti síðasta sumar með barnalegri og vanhugsaðri riðlaskiptingu

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 23:39:18 / gretarfb

Laukgleraugu takk

   'Eg setti inn grein hérna um daginn þar sem ég hneikslaðist mikið yfir heilsíðuauglýsingu á laukgleraugum og skildi engan veginn not fyrir svoleiðis drasl auk þess sem þau eru rándýr.

    Þannig er mál með vexti að ég var að elda dýrindis máltíð þar sem  laukur kom  við sögu en hann var saxaður smátt, og ég get sagt ykkur það að ég hef ekki grenjað svona mikið síðan ég var smápolli og sviðinn sem kom á eftir gerði mig hálfblindan allt kvöldið. Þannig að ég hef ákveðið á fjárfesta í þessum hlut fyrir næstu eldamennsku. Einnig vorum við að taka í not djúpsteikingarpott þannig að djúpsteikingargríman mín verður kominn á markað eftir viku. Manni hefnist fyrir gagnrýnina.

    Ps var búin að skrifa heillangan pistil um hvalveiðar og nasista sem fór fyrir bí frábært.

    


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 22:15:30 / gretarfb

Brúarholt 8 kvatt

Það er nokkuð blendin tilfinning sem berst um í huga manns þessa helgina þar sem ég er staddur í 'Olafsvík þessa stundina við að tæma íbúðina að Brúarholti 8 , hús foreldra minna. Húsið sem ég hef búið meira og minna í síðan ég var 7.ára, og verður þetta líklega síðasta nóttin sem ég gisti í 'Olafsvík. Það er ekki laust við að það sé nokkur söknuður að geta ekki komið hingað á páskum , jólum og fleiri athöfnum. Minningarnar eru vissulega margar héðan og rifjast margt skemmtilegt um í hausnum á manni sem ég fer ekki yfir hérna.

Mamma og pabbi flytjast nú á skagann og verða kominn mun nær ungunum sínum eftir þá fluttninga, sem er jákvætt.

Að þessu tilefni bið ég að heilsa öllum 'Olsurum og nærsveitingum sem ég hef haft kinni við í gegnum tíðina.

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 12:50:33 / gretarfb

'A jákvæðari nótunum.

Jæja það þýðir ekki að vera með einhver leiðidi hrista af sér slenið og hætta þessu helvítis væli. horfa til himins telja upp á tíu og hugsa um það vákvæða sem þessi veröld hefur upp á að bjóða. Það er ansi margt , tildæmis hélt ég að ég myndi aldrei ná þrítugu en það lítur út fyrir að þeim áfanga verði náð nema eitthvað stórkostlegt gerist á næstunni.

Það eru engin takmörk fyrir því sem reynt er að selja manni . Rakst á heilsíðuauglýsingu um daginn þar sem er reynt aðselja manni hin stórkostlegu laukgleraugu já laukgleraugu. Kaupir fólk þetta virkilega. Þar stóð að laukgleraugun væru hentug við tækifæri einsog þegar fyrsta stefnumótið væri og stelpan kæmi í rómantískan mat. Ekki vildirðu vera hágrenjandi þegar draumastelpan kæmi á staðinn.
'Eg kann ráð við því , slepptu því að skera tíu kíló af lauk tíu mínútum fyrir komu draumadísinnar, auk þess sem lyktin útúr þér heillar fáar stelpur eftir það át. Fer fólk virkilega að versla . Já 2 lauka og laukgleraugu með því,
Ef þessi bisness stendur undir sér , ætla ég að hefja framleiðslu á djúpsteikingargrímu af hverju ekki. Þú gætir skaðbrennst af því að steikja franskar.
'Eg hef ákveðið að henda handsprengjum einsog í síðustu grein einu sinni í mánuði, loksins fékk maður einhver komment.

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 12:32:40 / gretarfb

Reiðispistill

'Eg get ekki annað en tjáð mig aðeins um dónaskap og sjálfselsku nokkurra einstaklinga fyrir norðan , þar sem mér er ofboðið yfirgangur þeirra gagnvart sambands okkar Ernu. Það hafa verið stofnuð samtök á kópaskeri undir yfirskriftinni F'AUM ERNU HEIM. Allt frá því að við ákváðum að flytja var fólk sem jagaðist í henni að hún hefði ekkert að gera suður , sagði að þetta myndi aldrei endast hjá okkur og þetta væri bara rugl. Þú verður kominn aftur fyrir sláturtíð var sagt.

Maður hefur rekist á heimasíður með þessum samtökum þar sem enn er hamrað á þessu og allskyns leiðindi í gangi. Er svo komið að ég er hættur að fara á vissar síður til að fá ekki í magann og svitni ógurlega.

Maður spyr sig "má þetta" eru engin heiðursmannalög sem mæla gegn svona dónaskap gagnvart hinum aðilanum. Málið finnst mér bara aðkunna sig hugsa aðeins hvernig allir komist frá svona löguðu , fólk sem maður taldi sig þekkja ágætlega til.

Við erum saman núna , sættið ykkur við það , við erum sátt með lífið og meðan svo er finnst mér að fólk ætti að hugsa um sín eigin vandamál. Því yfirleitt er þetta fólk sem hefur stærri vandamál sjálft og heldur að það geti falið þau með að baktala aðra.

» 18 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 21:33:06 / gretarfb

Tekin í misgripum.

       Einsog allir vita þá er ég með heppnari mönnum, og sjaldan gerist eitthvað óvænt eða annað sem er ekki eftir bókinni og hinu eðlilega í lífinu. En það gerðist nú samt , þegar ég var tekin fyrir of hraðan akstur í misgripum fyrir annan bíl.

         Þetta gerðist fyir sirka fimm árum að ég keyrði heim úr vinnunni þreyttur og lúinn eftir langan vinnudag. 'A þeim tíma vann ég á Rifi og keyrði heim til 'Olafsvíkur eftir 15. tíma vakt þar sem ég vann við slæingu. Jæja þetta atvikaðist þannig að ég krúsaði heim á 70 í mestu rólegheitum og hugsaði um rúmið með hillingum, þegar ég nálgaðist bæinn sá ég að vinnufélagi minn kom á miklu spítti og nálgaðist minn bíl á ógnahraða , tók framúr mér án þess að slaka á bensíngjöfinni, en um leið og hann tekur framúr mér birtist löggan . Og gat ´eg ekki annað en vorkennt honum, nú hann fer út í kannt og ég fer framúr honum á mínum 70. km hraða svo löggan gæti athafnað sig við sekt og annað.
         Mér er litið í spegilinn þegar mér til skelfingar að ég sé að löggan hefur engan áhuga á ökuníðingnum og skýst fram úr stoppandi bílnum í vegakantinum. 'Eg held nú samt ró minni og hugsa með mér líklega hefur orðið slys einhversstaðar eða eitthvað áríðandi annars staðar , ég nálgast nú 'Olafsvík hægi ferðina enn meira og fer útí kanntinn til að greiða leið laganna varða.   Löggan hægir líka ferðina og staðnæmist svo fyrir aftan mig , ég verð að sjálfsögðu steinhissa og tek í beltið sem var spennt, ljósin eru þau í lagi hugsa ég , ekkert fleira datt mér í hug.

          'Eg býð í bílnum og löggan kemur að bílnum mínum og ég opna rúðuna. Hún segir viltu gjöra svo vel að koma í bílinn með okkur takk. 'Eg fer yfir og spyr þegar þangað var komið , hvað gerði ég. Hún svarar veistu hvað þú varst á miklum hraða. Já segi ég 70. 'Eg sá að á radarnum hjá þeim stóð 128.   Það var myrkur úti og hún spurði mig hvort þetta væri Rauð Toyota.  'Eg horfði á hann skrýtnum en blendnum augum , og segi nei blár Opel , bílinn sem þið mælduð var rauð Toyota þið tókuð mig í misgripum og beið eftir að sagt væri , þú ert í falinni myndavél.  Svo gott var það ekki heldur var sagt heldurðu að við séum fífl.  'Eg gat ekki svarað öðruvísi en játandi. borga skuldina og haldið kjafti , sem ég gerði reyndar ekki.

           'Eg þrætti við þá í smá tíma sagði þeim frá þeirra mistökum og reyndi að komast frá skuld sem ég átti ekki skilið.  Svörin sem ég fékk frá 'Olafsvíkur lögreglunni voru beinskeitt og tjáðu þeir mér það að ég gæti reynt að kæra þetta en létu mig vita það að það hefði ekkert uppá sig , og afbrotamenn gegn lögreglu myndu ekki eiga möguleika.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 18:17:15 / gretarfb

'Odýr pizza , dýrt símtal.

      Hver segir að það sé auðvelt að panta pizzu, ég ætlaði að gera mér dagamun á

fimmtudaginn síðasta og panta mér fljótlegt fæði , þar sem ég og Brynjar vorum tveir í mat og ég rakst á auglýsingasnepil frá Hróa Hetti sem hljómaði svona. Megahelgi hjá Hróa Hetti allar pizzur á 1099 kr. Með fjórum áleggstegundum. Svo ég tók upp tólið og hringdi . Þar svaraði stelpa sem tjáði mér að þetta væri Hrói.  Svo ég sagðist vilja 16” pizzu . Hún játti því. ‘Eg spurði Brynjar hvað hann vildi, það var stutt og laggott, skinku og ost einsog hann orðaði það , svo ég tjáði stúlkunni að ég vildi skinku öðru megin á pizzuna og hinum megin sveppi , pepperóní, og nautahakk . Það er ekki hægt svaraði hún . Hikandi spurði ég hvort ekki væri hægt að skipta henni.  Jú jú sagði hún. Hvað er þá málið sagði ég . Hún:  sko ef þú notar eitt hráefni öðru megin geturðu ekki breytt hinu megin      með öðrum því þú ert þá búin að nota tvær tegundir. ‘Eg:  Ha ég er bara komin með 4 tegundir , hvað má ég þá nota margar tegundir.  Hún: 4 svo þuldi hún eitthvað sama ruglið og sagði svo skilurru ekki. ‘Eg :nei ég held að þú skiljir þetta ekki hvernig get ég misst tvær tegundir með að breyta um tegundir , og hélt áfram ef ég er með 1 tegund öðru megin og þrjár hinu megin er ég í rauninni bara búin með tvær tegundir samtals yfir pizzuna.  Má ég þá bara nota eitt álegg hinu megin líka (mér leið einsog ég væri að spila catan eða monopoly, ekki að panta pizzu.)   Hún hélt áfram að masa og fannst einsog ekkert væri sjálfsagðara og ég væri eitthvað ruglaður , því ef ég nota sitthvora tegundina væri ég náttúrlega búin að nota þær allar, segir sig sjálft eða hvað.

 

 



          ‘Eg sá að hún ætlaði ekki að gefa sig , svo ég ákvað að tala við hana einsog hún væri fimm ára.  Og þá staðreynd að ég yrði að taka þessa helvítis skinku á minn helming líka þó ég vildi hana ekki.   ‘Eg   :  hlustaðu nú á mig og ekki grípa frammí , ég ætla að fá skinku öðrumegin á pizzuna ok , hinu megin á pizzuna ætla ég að fá SKINKU , pepperóní , og sveppi. Er það í lagi . Hún : NEI.  ‘Eg : af hverju ekki vonleysislegri röddu , bíddu sagði ég skinku á alla pizzuna , pepperóní og sveppi, má ég það.  Já svaraði hún .

 

 



         Þessi saga kennir okkur að ekki er að hægt að ganga að öllu vísu , og stundum þarf maður að hafa fyrir hlutunum .  Ekki er öllum gefin sá munaður að hafa virkan heila og er bara gaman að því , því svona lífsreynsla er ómetanleg.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3